Þú þarft ekki að vera tilbúin. Þú þarft bara að byrja.

Hver kona á skilið að finna fyrir styrk, sjálfstrausti og vellíðan í eigin líkama.

HER FORM snýst um meira en þjálfun. Við viljum skapa umhverfi þar sem konur fá stuðning til að vaxa, styrkjast og finna sína eigin leið - án samanburðar óraunhæfra væntinga eða þrýstings um að vera fullkomnar.

Hvort sem þú ert að byrja upp á nýtt eða stefna að nýjum markmiðum, þá byrjar þú þar sem þú ert í dag.
Á ÞÍNUM forsendum, á þínum hraða.

Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða þjálfun, styrkingu líkamans og uppbyggingu sjálfstrausts. Hvort sem markmiðið er að verða sterkari, móta líkamann, byggja upp heilbrygðar venjur eða finna aftur gleðina í hreyfingu, þá á þín vegferð skilið stuðning og hvatningu.

Við trúum á konur sem styðja konur, á litlu sigrana, skrefin áfram og hugrekkið sem þarf til að byrja! Árangur snýst ekki um að vera betri en einhver annar, heldur að líða betur með sjálfa sig og hversu langt maður hefur náð.

Þú átt skilið að setja þig í fyrsta sæti - og þú þarft ekki að gera það ein!

HER FORM - Your strenght, your journey!

Placeholder

Ert þú tilbúin að negla þín markmið?

Segðu mér frá þínum markmiðum og við finnum lausn saman!